Fréttablað Eflingar - janúar 2014 - page 33

Viðtalið
33
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Vinnustaðurinn
Flugeldar í jólapakkanum
Atli Örn Sævarsson, í gæðamálum í vöruhúsi
Atli Örn Sævarsson sér um gæðamál í vöruhúsi eða talningar og rýrnun.
Hann byrjaði á gólfinu í tínslu eins og hann orðar það. Þar á hann við að
tína til pantanir. Síðar varð hann vaktstjóri en hefur verið í núverandi starfi
síðustu tvö ár. Ég passa að fjöldi vara í vöruhúsinu sé sá sami og er gefinn
upp í tölvukerfinu. Spurður að því hvað hann geri ef tölur stemma ekki
segir hann. Ég get rakið allt í tölvukerfinu og er venjulega fljótur að finna
út af hverju ósamræmið stafar. Venjulega er það af því að pöntun er tekin
vitlaust saman eða að við höfum fengið of lítið eða mikið magn af vörum
að utan, segir hann.
Atli Örn segir starfsmannafélagið Mjöð vera mjög öflugt og nóg af
uppákomum fyrir starfsmenn. Nú síðast hafi verið jólaball fyrir starfs-
menn og börn sem hafi verið vel sótt. Mér líður vel í vinnunni og vinnuað-
staðan er mjög góð, segir Atli. Aðspurður hvort ekki hafi verið erfitt að
kynnast starfsfólkinu á svo stórum vinnustað, segir hann svo ekki vera.
Fyrst kynntist ég fólkinu sem vann á sömu vakt og ég og þegar ég varð
vaktstjóri, kynntist ég sjálfkrafa öllum. Hérna er góður andi, segir hann.
Allir starfsmenn Ölgerðarinnar fengu veglegan jólapakka frá fyrirtækinu
og var Atli hæstánægður með pakkann enda innihélt hann flugelda ásamt
ýmsum kræsingum. Það var frábært að fá flugelda, segir hann. Það er
gaman að segja frá því að í pakkanum er terta sem er merkt Malti og
Landsbjörgu þar sem 10 kr. af hverri seldri Malt frá afmæli Ölgerðarinnar
í apríl til áramóta rennur til styrktar Landsbjargar.
Gjafavaran er vinsæl
Brynja Ragnarsdóttir,
í vöruflokkun/á kardex í vöruhúsi
Mér leiðist ekkert í vinnunni þó ég vinni ein, ég hlusta bara á útvarpið,
segir Brynja en hún vinnur við að flokka pantanir í sérvöru. Hún vinnur
við stóran turn eða kardex sem hefur að geyma 112 hillur alveg frá gólfi
upp í loft en alls eru hillurnar 224 þar sem turninn skiptist í tvennt.
Áður þurftu fjórir að vinna við þetta en nú er ég ein, tæknin er orðin svo
mikil, segir hún.
Brynja var í óðaönn að flokka pantanir þegar blaðamann bar að garði
og sagði að fyrir jólin væri mikið að gera. Pantanir taka líka breytingum
og gjafavara frá hinum ýmsu framleiðendum er alltaf vinsæl á þessum
árstíma, segir hún.
Aðspurð hvort hún taki þátt í viðburðum á vegum starfsmannafélagsins,
segist hún gera það. Ég reyni að mæta á viðburði en það stendur upp
úr ferð sem ég fór með vinnufélögunum til Barcelona í apríl. Þrátt fyrir
að það rigndi allan tímann, pældi ég ekkert í því af því að það var svo
gaman.
1...,23,24,25,26,27,28,29,30,31,32 34,35,36,37,38,39,40
Powered by FlippingBook