32
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Vinnustaðurinn
Vinnustaðaheimsókn – Ölgerðin Egill Skallagrímsson
Brosmildir og jákvæðir vinnufélagar
- segir Raimonds Smits á lager í vöruhúsi
Raimonds Smits hefur unnið í fjögur ár hjá Ölgerðinni og segir vinn-
una skemmtilega því allir séu glaðir í vinnunni. Vinnufélagarnir eru
brosmildir og jákvæðir og það finnst mér skemmtilegast við vinnuna
Egils malt og appelsín er eitthvað sem flestir landsmenn kann-
ast við enda órjúfanlegur hluti jólanna fyrir mörgum. Það
eru starfsmenn Ölgerðarinnar sem sjá um að við fáum nóg af
þessum drykkjum en salan margfaldast vikuna fyrir jól. Um
40 % af öllu malti sem selt er á hverju ári er selt í nóvember
og desember og um 25 % af appelsíni. Undirbúningur fyrir
jólin byrjar snemma og strax í mars er byrjað að huga að jóla-
bjórnum sem margir þekkja. Það er þó í desember sem allt er
á fullu, starfsfólkinu fjölgar um rúmlega 50 manns og vinna
lengri vinnudaga en alls eru um 139 Eflingarfélagar sem vinna
hjá Ölgerðinni.
Ölgerðin er einn stærsti gos- og áfengisframleiðandi landsins. En
kannski vita það færri að hún er líka ein stærsta heildsala landsins með
mat – og sérvöru ásamt því að vera stór innflytjandi áfengis.
Blaðamaður Eflingar tók hús á nokkrum Eflingarfélögum í vöruhúsinu
rétt fyrir jól þegar allir voru í óðaönn að koma vörum út úr húsi svo
landsmenn fengju að njóta.
mína, segir hann. Starfsmannafélagið Mjöður stendur fyrir ýmsum
viðburðum fyrir starfsmenn og segir Raimonds venjulega vera fjör á
þeim samkomum. Félagsskapurinn hér er góður, segir hann.
Allt á fullu í desember