Viðtalið
31
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Útskriftir frá Mími-símenntun 17.desember sl.
Framhaldsnám félagsliða
Þetta tókst allt saman
Ég er þakklátur fyrir námið og ánægð-
ur að fá tækifæri til að afla mér meiri
fræðslu, segir Carlos F Echegaray
Linares sem útskrifaðist úr framhalds-
námi félagsliða um fatlanir og geðrask-
anir. Hann segir alltaf gott að auka við
þekkingu í starfi því það veiti manni
meira sjálfstraust og öryggi. Ég vildi
læra meira um sjúkdóma og fatlað fólk
og hvers konar réttindi það á. Það var
erfitt að læra meðfram vinnunni en
þetta tókst allt saman, segir hann.
Óvænt á hjúkrunarheimili
Carlos hefur ástríðu fyrir starfinu sínu og
líkar vel við að hjálpa fólki og láta því líða
vel. Hann vinnur mikið, er í fullri vinnu á
Skógarbæ og í 30 % vinnu í Seljahlíð. Ég kem
frá Perú en er búinn að vera á Íslandi í 15 ár,
segir hann. Aðspurður af hverju hann byrjaði
að vinna á hjúkrunarheimili segir hann að
það hafi komið óvænt. Ég var á sjó og skipið
þurfti að fara í slipp og ég var í fríi í mánuð.
Á þessum tíma bjó ég niður í bæ nálægt
Droplaugarstöðum og datt í hug að prófa
hvernig væri að vinna þar og vann þar í eitt
ár. Hann segist svo hafa farið á Kárahnjúka
og safnaði pening. Hann byrjaði eftir það hjá
Eimskip en segir að hann hafi einungis unnið
með útlendingum sem töluðu bara ensku
og hann hafi viljað sækja um aðra vinnu. Ég
hætti ekki á Droplaugarstöðum á sínum tíma
vegna þess að það var ekki gaman heldur til
að safna pening. Ég ákvað því að sækja um á
Skógarbæ, segir Carlos en hann hefur unnið
þar í átta ár og fjögur í Seljahlíð.
Líkamlega erfitt
Vinnan getur verið erfið og reynir á líkamlega
en hún er mjög gefandi, segir Carlos. Hann
vinnur með fólki sem berst við hinu ýmsu
sjúkdóma og oft er fólk mjög veikt. Á deild-
inni sem hann er á núna er tekið á móti fólki
beint af spítala í líknandi meðferð.
Það vinna allir saman
Ég veit ekki af hverju það eru svona fáir karl-
menn í þessu starfi því það er líkamlega erfitt
en það á kannski eftir að breytast í framtíð-
inni, segir Carlos. Hann segir samstarfið við
konurnar ganga vel í vinnunni. Við erum góð
hvort við annað og reynum að vera tillitsöm,
það vinna allir saman, segir hann að lokum.
- segir Carlos F Echegaray Linares
Ég vildi læra meira sjúkdóma
og fatlað fólk og hvers konar
réttindi það á.